VSB Verkfræðistofa veitir alhliða ráðgjöf við framkvæmdir allt frá fyrstu hugmynd, að tilbúnu mannvirki. Á fyrstu stigum verkefnis þarf að móta verkefnið svo það uppfylli þarfir verkkaupa á hagkvæman hátt. Sem dæmi um ráðgjöf á þessum fyrstu stigum má nefna:
- Umfjöllun valkosta
- Könnun á staðsetningu og aðstæðum
- Þarfagreining
- Áhættugreining
- Tillaga að útboðs- og samningsformi, samkeppni osfrv.
- Mat á þörfum fyrir sérstaka ráðgjafa
Framkvæmdasvið VSB verkfræðistofu tekur því þátt í að þróa og móta verkefnið, svo hægt sé að koma því til hönnuða og síðar í framkvæmd. Sem dæmi má nefna:
- Skilgreina þarf kröfur til rýma og draga þarf komandi notendur inn í það ferli
- Skilgreina þarf kröfur til kerfa byggingarinnar
- Kröfur til verkkaupa um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustað
- Rýna þarf niðurstöður frumrannsókna, s.s. jarðvegs-, umhverfis o.f.l.
- Velja þarf útboðsform sem hentar verkefninu
- Kröfur á gæðastýringu hönnunar, framkvæmdum þ.m.t. eftirlit og byggingastjórn
- Vinna þarf tíma- og kostnaðaráætlun fyrir verkefnið
- Kröfur um stafræna tækni, BIM osfrv.
Þegar komin er endanleg mynd á kröfur verkkaupa til verkefnisins er tímabært að setja verkefnið í hönnun. VSB verkfræðistofa tekur að sér m.a. ráðgjöf við:
- útboð hönnunar
- úrvinnslu tilboða
- samninga við ráðgjafa
- auk eftirfylgni og umsjón hönnunar
Dæmi um nýleg verkefni:
- Hönnun Kársnesskóla
- Alútboð fjölnota íþróttahúss í Garðabæ
Nánari upplýsingar um framkvæmdaráðgjöf veitir sviðstjóri framkvæmdasviðs:
Örn Guðmundsson